Fyrirspurnir

Bókhald og rekstrarráðgjöf
BókhaldVirðisaukaskatturLaun og skilagreinarÁrsreikningar og skattframtötRáðgjöfStarfsfólk

Úthýsing á launavinnslu og launagreiðslum er sífellt að aukast. Við getum séð um allt sem viðkemur launamálum, s.s. útreikningi launa, útsendingu launaseðla, greiðslu launa og orlofs og útsendingu launamiða/verktakamiða í lok hvers launaárs. Einnig getum við haldið utan um orlofstöku starfsmanna, veikindadaga og önnur mál tengdum starfsmannahaldi.

Við fáum upplýsingar frá þér í lok hvers mánaðar er varða vinnu starfsmanna fyrir líðandi mánuð, fyrirframgreiðslur o.þ.h. og vinnum launaútreikning í samræmi við það. Þú færð síðan launalista til yfirferðar og samþykkis. Launaseðlar eru svo sendir til viðkomandi starfsmanns í pósti eða rafrænt eftir óskum félagsins. Einfaldara getur það ekki verið.
Skilagreinum staðgreiðslu og tryggingargjalds er skilað rafrænt til skattstofu og krafan birtist í netbanka fyrirtækisins. Skilagreinum lífeyrissjóða og félagsgjalda er einnig skilað rafrænt beint úr bókhaldskerfinu.

Möguleiki er fyrir fyrirtæki að vera eingöngu í launavinnslu. Launamál eru oft viðkvæm innan fyrirtækisins og oft á tíðum unnin af aðilum sem gætu varið tíma sínum betur í önnur verk og látið okkur sjá um handavinnuna.
Bókhald
Hjá Fastlandi færðu alla bókhaldsþjónustu fyrir fyrirtæki, einstaklinga og félagasamtök.
Virðisaukaskattur
Skilagreinum virðisaukaskatts
er skilað rafrænt beint úr bókhaldskerfinu.
Ársreikningar or skattframtöl
Við vinnum ársreikning upp úr bókhaldi fyrirtækisins og skattframtalið í framhaldi af því.
Fastland ehf.   |   Höfðabakka 9, 3. hæð   |   Sími: 511 7005   |   Fax 511 7006   |   fastland@fastland.is