Fastland appið

Öll sala og kostnaður á einum stað. Gögn skila sér beint til bókarans. Fastlandappið er snjallt verkfæri fyrir viðskiptavini Fastlands til að senda sölureikninga, taka myndir af kostnaðarreikningum eða kvittunum o.fl. Gögnin skila sér svo sjálfkrafa beint í bókhaldið þitt hjá Fastland.

Lesið meira

Fyrir hverja er Fastland appið?

Fastland appið er eingöngu ætlað viðskiptavinum Fastland.

Ef þú hefur áhuga á að koma í viðskipti til Fastlands þá getur þú sótt Fastland appið og stofnað aðgang. Við höfum síðan samband og bókum fund.

Hvers vegna að nota Fastland appið?

Því það minnkar handavinnu, lækkar kostnað og eykur yfirsýn.

  • Hraðari skráning kostnaðar – Skráðu útgjöld um leið og þau verðatil.
  • Kostnaðarreikningar/kvittanir á einum stað – Yfirlit yfir allan skráðan kostnað oghvaða kostnað Fastland er búið að bóka.
  • Segðu bless við pappír og vinnu við aðkoma bókhaldsgögnum til bókarans – Gögn skila sér beint til Fastlands. Ekkert rassvasabókhald, engar möppurmeð reikningum, engar tölvupóstsendingar og engar sameiginlegar möppur (d.Dropbox).
  • Betra bókhald yfir árið – Skilvirkni, tímaleg skil og skýrarimynd af rekstrinum.
  • Allt á einum stað – Góð yfirsýn með allri sölu og kostnaði.

Hvað getur þú gert í Fastland appinu?

Í Fastland appinu getur þú:

  • Stofnað og sent reikninga.
  • Skráð kostnað með því að taka mynd af reikningi/kvittun.

Fastland appið og Konto

Fastlandappið byggir á reikningakerfi Konto.
Þegar þú sækir Fastland appið getur þú annað hvort stofnað nýjan aðgang eðaskráð þig inn með rafrænum skilríkjum, ef þú ert nú þegar með Konto aðgang.

Fastlands appið er tengt við Konto. Þú hefur því aðgang að sömu virkni í Fastland appinuog á konto.is. Allir reikningar sem þú sendir og allur kostnaður sem þú skráireru sýnileg bæði í Fastland appinu og á Konto aðganginum þínum.Þú getur til dæmis sent reikninga á konto.is en notað Fastland appið til aðtaka myndir af kvittunum, allt eftir því hvað þér hentar. Öll gögnin eru þávarðveitt og aðgengileg bæði á konto.is og í Fastland appinu.

Hvernig skrái ég kostnað í Fastland appinu?

  1. Þú velur að skrá kostnað og síðan tekur þú mynd af reikningi eða velur mynd sem er vistuð á símanum þínum.
  2. Kostnaðurinn skráist sjálfkrafa í Kostnaðarskráning í tímaröð miðað við útgáfudag reiknings.
  3. Fastland sækir skráðan kostnað með sjálfvirkum hætti og skilar hann sér beint inn í bókhaldskerfi.

Öryggi og eignarhald gagna

  • Gögn eru dulkóðuð og varðveitt meðöruggum hætti í a.m.k. 7 ár.
  • Aðgangsstýring er skýr milli þín og Fastland.
  • Þú ert alltaf eigandi gagna þinna.

Viltu einfalda það að koma gögnum til bókarans? Fastland appið er hannað til að spara bæði þér og bókaranum tíma. Rekstrargögn skila sér sjálfkrafa til bókarans. Minna vesen og ekkert rassvasabókhald. Heldur rafrænt bókhald í nær rauntíma - frá fyrstu kvittun til ársskila.