Mannauðsstjóri að láni

Kolbrún Magnúsdóttir 

Nýjasta viðbótin í þjónustuframboði Fastlands er mannauðsráðgjöf eða mannauðsstjóri að láni. Með þjónustunni fá fyrirtæki aðgangað reynslumiklum ráðgjafa í mannauðs- og stjórnendamálum, án þess að þurfa að ráða mannauðsstjóra í fullt starf.

Lesið meira

KolbrúnMagnúsdóttir, eða Kolla eins og hún er oftast kölluð, hefur starfað viðmannauðsmál undanfarinn áratug. Hún hefur mikla ástríðu fyrir því að sjá fólkeflast og vaxa í sínu hlutverki og hjálpa fyrirtækjum að koma mannauðsmálum áréttan stað. 
‍

Við þekkjum þaðvel af eigin reynslu að þegar fyrirtæki stækka hratt geta eigendur og stjórnendur misst tökin á mannauðsmálunum. Þá er afar dýrmætt að fáreynslumikinn aðila eins og Kollu til liðs við sig, sem hjálpar til við aðbyggja upp skýran ramma utan um mannauðsmál, setja hlutina í réttan farveg ogtryggja að grunnatriðum sé sinnt. 
‍

Þjónustan erveitt í gegnum Fastland og styður þjónustan fyrirtæki í að byggja uppskýra, faglega og sjálfbæra mannauðsstjórnun sem tengist beint árangri,menningu og stefnu fyrirtækisins. Þjónustan er hagnýt, lausnamiðuð og aðlöguðað stærð, þroska og þörfum hvers fyrirtækis. 
‍

Hægt að leita tilokkar vegna afmarkaðra verkefna, sértækrar ráðgjafa eða fá mannauðsstjóra aðláni. Best er að hefja samstarfið með samtali þar sem við tökum stöðufund,greinum þarfirnar og ákveðum í sameiningu hvaða fyrirkomulag hentar best hverjusinni. ‍

Þjónustan hentar fyrirtækjum sem vilja koma skipulagi á mannauðsmál og skýra ábyrgð. 

‍

  • Gerð og/eða yfirferð ráðningarsamninga og starfslýsinga
  • Mótun ferla í mannauðsmálum
  • Mótun og innleiðing starfsþróunarsamtala og reglulegra „check-in“ samtala
  • Uppsetning og úrvinnsla starfsánægjumælinga
  • Stefnur í mannauðsmálum, fræðslu, viðveru og EKKO ásamt innleiðingu
  • Gerð starfsmannahandbókar
  • Uppsetning og innleiðing á mentor kerfi fyrir þjálfun nýrra starfsmanna
  • Markþjálfun stjórnenda og lykilstarfsfólks
  • Stuðningur og utanumhald við ráðningarferli, m.a. ráðningarviðtöl
  • Uppsetning og úrvinnsla starfsánægjumælinga
  • Stuðningur við einstök mannauðstengd verkefni eftir þörfum

Heildræn mannauðsstjórn – Mannauðsstjóri að láni

Hentarfyrirtækjum sem vilja fá faglega mannauðsstjórnun án þess að ráða í fulltstarf. Mannauðsstjóri að láni er með fasta viðveru á mánuði og fer það eftirumfangi og stærð fyrirtækisins.
‍

Kolla býr yfirvíðtækri þekkingu og reynslu á sviði markþjálfunar, mannauðs- og fræðslumála ogveitir stjórnendum ráðgjöf og handleiðslu í fjölbreyttum verkefnum.
‍

Kolbrún er metnaðarfull, sýnir frumkvæði í starfi og er óhrædd við að hrinda hugmyndum í framkvæmd. Hún hefur brennandi áhuga á að vinna með fólki, efla teymi og láta góðar hugmyndir verða að veruleika, býr yfir sterkri reynslu af teymisvinnu, framúrskarandi mannlegum samskiptum, ríkri þjónustulund og er árangursdrifin að eðlisfari.