Hjá okkur færðu ráðgjöf á mannamáli þar sem við leggjum mikla áherslu á að þú skiljir hvað það er sem við getum gert fyrir þig. Þetta þarf ekki að vera flókið – bara skemmtilegt, því ótrúlegt en satt þá höfum við gaman af tölum og skattapælingum. Við erum bara pínu skrítin!
Við veitum persónulega þjónustu, sýnum viðskiptavinum okkar umhyggju og virðingu. Okkar stolt er að þér gangi vel.
Fastland ehf var stofnað í mars 2009 og hefur síðan þá vaxið og dafnað frá einum starfsmanni í tuttugu og tvo.
Við hugsum af alúð um viðskiptavini okkar svo þeir geti áhyggjulausir hugsað um það sem þeir gera best.
Starfsfólk

Silja Dögg Osvaldsdottir
Framkvæmdarstjóri - viðskiptafræðingur
Góðhjartaða Silja veit allt um rekstur allra viðskiptavina Fastlands og er hjartað í rekstri okkar. Með yfir 30 ára reynslu af rekstri fyrirtækja, bókhaldi, uppgjörum og skattamálum. Silja talar um rekstur og fjármál á mannamáli þannig að þú skiljir hvað við getum gert fyrir þig og þú fáir sem mest út úr þínum rekstri.

Hildur Eva Valgeirsdóttir
Viðskiptastjóri - Viðskiptafræðingur með Macc. í reikningshaldi og endurskoðun. Viðurkenndur bókari og Próf í verðbréfaréttindum
Hildur er ofvirk og á það til að fylla dagskrána sína umfram tíma í sólarhringnum en það virðist ekki koma að sök. Hún er með ríka réttlætiskennd og lætur þig óhikað vita ef eitthvað má betur fara. Grefur sig ofan í þinn rekstur og aðstoðar við hagræðingu í rekstri félagsins. Hún sinnir ársreikningum og framtölum ásamt fjármálaráðgjöf.

Ásdís Clausen
Viðskiptastjóri - Viðskiptafræðingur með Macc. í reikningshaldi og endurskoðun
Skíðadrottningin og göngugarpurinn Ásdís er þaulvön öllum rekstri og hefur gríðarlega mikla þekkingu á bókhaldi og uppgjörum. Hún er nákvæm og réttsýn þegar kemur að regluverki skattamála og sinnir þínu félagi af alúð. Sinnir ársreikningum og framtölum og almennri rekstrarráðgjöf.

Angela Ingibjörg Coppola
Deildastjóri launa - Viðskiptafræðingur
Töffarinn okkar og dugnaðarforkur. Hér færðu eftirfylgni og skipulag á öllu sem lítur að launum og útreikningi. Samviskusöm og útsjónarsöm á regluverki launamála og finnur bestu leiðina í gegn um skattafrumskóginn.

Guðbjörg Guðmundsdóttir
Bókari - Viðskiptafræðingur
Húmoristinn okkar sem er alltaf til í sprell. Vön öllum hliðum bókhalds og með mikla reynslu. Snillingur í rafrænum ferlum og fljót að sjá hvað betur má fara í þínum rekstri. Sinnir einnig grunnvinnu í ársreikningagerð.

Markus Hávarr Jónsson
Bókari – viðskiptafræðingur með mastersgráðu í fjármálum
Markús er einstakur og ljúfur drengur. Hann lauk mastersnámi frá Hult Internation Business School í Cambridge MA og hefur því mikla þekkingu á fjármálum fyrirtækja og rekstrarumhverfi þeirra. Þó Markús sé hæglátur og láti lítið fyrir sér fara býr hann yfir mikilli þekkingu á lánaumhverfi fyrirtækja og fjármögnunarmöguleikum. Einnig er hann í námi í réttindum til verðbréfamiðlunar.

Lára Björk Curtis
Bókari - Viðurkenndur bókari
Gleðisprengjan í skvísuhópnum. Hér erum við að tala um þema skipulag í hverjum mánuði og alltaf stuð í kringum hana. Heldur okkur hinum iðulega í góðu stuði. Flottur bókari sem sinnir þínum rekstri af alúð.

Bára Jónsdóttir
Launafulltrúi
Ljúf, róleg, hress og kát. Hérna færðu allt fyrir peninginn. Áratuga löng reynsla af launaútreikningum og kjarasamningum.

Helga Margrét Haraldsdóttir
Bókari - Bs í Fjármálaverkfræði
Helga er mikill íþróttagarpur og stuðbolti. Hún keppti lengi vel í frjálsum í þróttum með góðum árangri. Keppnisandinn nýtist henni vel í bókhaldinu þar sem hún vinnur hratt og vel og af mikilli nákvæmni. Hún er fyrsti starfsmaður okkar með próf í fjármálaverkfræði og er því lausnamiðuð og er sífellt að kenna okkur sem eldri erum nýja ferla og þægindi.

Lilja Torfadóttir
Skrifstofustjóri - Bókari - Reikningagerð
Skipulagsfrík og heldur aga á okkur hinum. Hún passar vel upp á þínar tekjur.

Sigrún Linda Baldursdóttir
Bókari - Reikningargerð - Viðskiptafræðingur
Hógvær lítil skvísa sem hefur blómstrað hjá okkur. Er mjög fljót að læra og er iðinn bókari. Snillingur í afstemmingum og rafrænum ferlum. Fljót að tileinka sér nýjungar í vinnslu bókhalds og kennir okkur hinum. Hún sér líka til þess að hér sé fullt hús matar.

Úlfhildur Sigursveinsdóttir
Bókari - Viðurkenndur bókari
Ofvirka Úlla er snillingur og mikil gleðisprengja. Hefur mjög góða þekkingu á bókhaldi og rekstri og er klár í að hámarka nýtingu á tíma í bókhaldi og láta bókhaldið vinna fyrir þig.

Eva Björk Jóhannesdóttir
Einkaþjálfari - Matráður / Le chef
Orkusprengjan Eva lætur okkur öllum líða vel og matreiðir fyrir okkur heilsusamlegar krásir á hverjum degi. Passar upp á að okkur líði vel í vinnunni og hér sé hreint og fínt.

Ingunn Bjarnason
Bókari - Viðskiptafræðingur
Hláturkassinn Ingunn er hress og kát skvísa sem sinnir öllum verkefnum af samviskusemi. Fljót að tileinka sér nýjungar í bókhaldi og vinnubrögðum. Gerir allt svo þú fáir sem mest út úr okkar vinnu.

Guðríður Margrét Jóhannsdóttir
Bókari – viðurkenndur Bókari
Gurrý er hress og kát lítil skotta sem kemur úr ferðaþjónustu og veitingageira. Gurrý þekkir því líka veltil þess að vera hinum megin við borðið og veit hvað þarf til að allt gangi upp og þekkir hversu sveiflukenndur þannig rekstur er. Hún er skipulögð og útsjónarsöm enda rekur hún stórt heimili þó ung sé.

Ester María Gunnarsdóttir
Bókari – viðurkenndur Bókari
Ester er kamelljón og datt inn í hópinn hjá okkur og nánast eins og hún hafi alltaf verið hér. Ester hefur góða reynslu af bókhaldi og mjög öflug í rafrænum ferlum. Hún er á fullu að kenna okkur gömlu nýja siði og venjur sem við nýtum okkur til að efla þjónustu okkar í þína þágu. Hún er hress og kát með einstaklega góða nærveru og er gott að leita til hennar.

Elín Sif Steinarsdóttir Röver
Bókari – bs í viðskiptafræði
Elín er metnaðarfull og mikill dugnaðarforkur. Hún hefur mjög víðtæka þekkingu á tækni- og tölvumálum ásamt rekstrar og reikningshaldi. Elín er mikill dýravinur og stofnaði samtök sem sinna umönnun dýra í neyð ásamt því að sjá um allt utanumhald. Hún var áður sjálfstætt starfandi við að betrumbæta fyrirtæki og verkferla þeirra. Hún hefur hún reynslu af stofnun fyrirtækja erlendis, óhrædd við að reyna nýja hluti og sækja sér nýja þekkingu.

Elma Dögg Frostadóttir
launavinnsla og sér verkefni
Elma er vestfirðingur í húð og hár og hefur þennan beitta Vestfirska húmor. Hún er mjög skipulögð og er snögg að sjá hvað má betur fara í þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur. Elma hefur góða reynslu úr ýmsum skrifstofustörfum sem bókari, gjaldkeri, reikningagerð og við launavinnslu. Hún kom inn sem frábær viðbót í launadeildina okkar ásamt því að halda utan um þjónustusamninga og áreiðanleikakannanir og aðra skjalagerð fyrir okkar viðskiptavini .

Hafdís Sölvadóttir
Viðurkenndur bókari
Hafdís er einstök brosmild perla og alveg ótrúlegt að frá fyrsta degi var bara eins og hún hefði alltaf verið hér. Hafdís er krabbi en krabbinn þrýfst á því að hlúa að þeim sem eru henni næstir og skín það í gegn í vinnubrögðum hennar gagnvart viðskiptavininum. Hún er reynslumikill bókari með víðtæka þekkingu á bókhaldi og rekstri. Það er því gott að leita til hennar.

Lúðvík Thorberg B. Arnkelsson
viðskiptafræðingur og master í fjármálum
Lúlli er handboltastrákur og leikur með Val. Hér er á ferðinni gríðarlegt keppnisskap en á sama tíma skipulag og góð vinnubrögð. Lúlli hefur starfað við bókhald samhliða námi og hefur því góða reynslu í pokahorninu. Hér erum við með góðan dreng sem aðstoðar þig við allar hliðar bókhalds og rekstrar. Hann er með master í fjármálum sem veldur því að hann horfir öðrum augum á reksturinn, Með ferska sýn á þinn rekstur.