Bókhald og ráðgjöf

Við sjáum um bókhald og allt sem við kemur bókhaldi fyrir hundruði fyrirtækja. Því af hverju að hamast í því sjálf ef þú getur fengið sérfræðing til að sjá um það fyrir þig. Þá ertu alltaf með allt á hreinu og getur eytt orkunni þinni í annað. Til viðbótar veitum við allskyns fjármálaráðgjöf varðandi reksturinn. Finnum hvar þú ert að peningar leka, hvort skuldasamsetningin þín er sú besta sem þú gætir fengið eða hvernig þú gætir betur nýtt fjárflæðið í rekstrinum. Hvað sem þú þarft á að halda til að bæta hjá þér reksturinn og hafa hlutina í lagi, við getum hjálpað þér við.

Lesið meira

Bókhald

Finnst þér bókhald ekki sérstaklega skemmtilegt? Þá geturðu einfaldlega látið okkur hjá Fastlandi sjá um það. Bókhald er það sem við kunnum best og okkur finnst það í alvöru skemmtilegt. Við tökum utan um bókhaldið fyrir þig svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir þig mestu máli í rekstrinum.

Bókhald er einn mikilvægasti þáttur hvers reksturs og hjá Fastlandi starfar reynslumikið fagfólk sem veitir persónulega bókhaldsþjónustu með áherslu á öryggi, yfirsýn og traustan grunn undir reksturinn. Með okkur í liði geturðu haft fullt sjálfstraust í fjármálunum og einbeitt þér að þeim þáttum rekstrarins sem þú hefur ástríðu fyrir.

Við leggjum upp með gott samtal og finnum saman lausn sem hentar þínum rekstri. Í sameiningu ákveðum við hvaða þættir bókhaldsins eru í okkar höndum og hvaða hlutar eru áfram hjá þér. Allt okkar starf byggir á fyllsta trúnaði og þú getur treyst þv að við berum hag þinn fyrir brjósti, óháð stærð rekstrar eða atvinnugrein.

Ef umfang bókhaldsins er orðið þannig að þú þarft sífellt að setja þig í stellingar og rifja upp reglur og verklag, getur verið bæði skynsamlegt og hagkvæmt að úthýsa því til fagfólks. Með því spararðu tíma og peninga og minnkar líkur á mistökum, á meðan við sinnum verkefnum eins og ársreikningum, launavinnslu og skilagreinum, reikningagerð, skattframtölum og virðisaukaskatti – allt á forsendum sem henta þér og þínum rekstri.

Ráðgjöf –fjármálavöktun

Við leggjum mikla áherslu á að veita viðskiptavinum okkar reglulega og skýra endurgjöf á reksturinn. Að lágmarki tvisvar sinnum á ári förum við yfir rekstrartölur og framkvæmum það sem við köllum fjármálavöktun. Þá greinum við helstu lykilþætti rekstursins, skoðum hvort kostnaður sé í eðlilegu lagi, hvar hægt sé að hagræða og hvernig megi fá meira fyrir hverja krónu sem sett er í reksturinn.

Út frá fjármálavöktuninni skapast markvisst samtal um reksturinn sem gerir þér kleift að taka meðvitaðari og betri ákvarðanir. Við ræðum hvar ástæða er til að spýta í, hvar hægt er að draga saman og hvað er einfaldlega ekki að skila tilætluðum árangri. Með þessu verður þú betur inni í rekstrinum, með skýrari yfirsýn og aukna tilfinningu fyrir stöðu og þróun fyrirtækisins.

Við leggjum áherslu á persónulega ráðgjöf á mannamáli, án flókins orðalags eða frasa, þar sem markmiðið er alltaf að styðja þig í að byggja upp traustan, sjálfbæran og arðbæran rekstur.