Greiðsluþjónusta

Að greiða reikninga og gjöld á réttum tíma skiptir miklu máli í daglegum rekstri fyrirtækja. Þar getum við orðið að liði og haldið utan um allar greiðslur á meðan þú aflar tekna fyrir reksturinn.

Lesið meira

Við hjá Fastlandi getum séð um greiðslur fyrir þig, ýmist á öllum reikningum eða bara á föstum liðum eins og greiðslum til RSK, skilagreinum til lífeyrissjóða og stéttarfélaga sem mjög kostnaðarsamt er að gleyma sem og greiðslu launa.

Einnig vinnum við með þér í að forgangsraða greiðslum ef lausafjárstaða fyrirtækisins er ekki sem best. Þannig vinnum við með þér í að koma fyrirtækinu út úr lausafjárskorti og komast í skil með allt og sleppa við verulegan vanskilakostnað eða lögfræðiinnheimtur.

Úthýsing á greiðsluþjónustu getur hentað bæði stærri og smærri rekstraraðilum – við sníðum þjónustuna að þínum þörfum.