Ársreikningar

Ársreikningurinn er upplýsingaskjal sem gefur vísbendingar um gengi þíns reksturs frá ári til árs. Þar sem finna má lykiltölur í rekstrinum. Sem gefur þér góða yfirsýn á þróun rekstursinsmilli ára
‍

Í ársreikningnum er að finna upplýsingar um hlutverk og skyldur uppgjörsaðila. Uppgjörsaðili getur verið löggiltur endurskoðandi, skoðunarmaður eða annar aðili sem sér um að útbúa ársreikningsskjalið. Ársreikningurinn inniheldur einnig rekstrarreikning (tekjur og gjöld), efnahagsreikning (eignir og skuldir), sjóðstreymi, skýringar og sundurliðanir.

Lesið meira

Endurskoðun ársreiknings

Öll félög sem skráð eru í Kauphöll Íslands eru skylt að skila endurskoðuðum ársreikningi frá löggiltum endurskoðanda. Skilyrði fyrir endurskoðun ársreikninga hjá löggiltum endurskoðanda eru þrjú og þurfa lögaðilar að uppfylla tvö þeirra.
‍

Þetta eru:

  • Ársvelta fari yfir 1300 milljónir á árinu
  • Eignir séu umfram 650 milljónir
  • Reksturinn feli í sér 50 ársverk
    ‍

Það eru einungis stærstu félögin á Íslandi sem uppfylla þessi skilyrði. Aðrir lögaðilar eru ekki endurskoðunarskyldir og er því heimilt að gera sjálfir sín skattskil og skila ársreikningi. Algengast er að fá fagaðila eins og Fastland til þess að halda utan um alla þessa þræði.

Öll félög sem skráð eru í Kauphöll Íslands er skylt að skila endurskoðuðum ársreikningi frá löggiltum endurskoðanda.

Ársreikningur

Þarft þú að skila ársreikningi til skattsins? Einkahlutafélög (ehf), hlutafélög (hf), samlagsfélög (slf), sameignarfélög og sjálfseignarstofnanir í atvinnurekstri þurfa skv. lögum um ársreikninga 3/2006 að skila ársreikningum til Ársreikningaskrár hjá Skattinum.
‍

Engar áhyggjur, ef þú ert með bókhaldið hjá okkur, þá vinnum við ársreikninginn fyrir þig og tryggjum að ársreikningnum sé skilað til birtingar á réttu formi, á tilskyldum tíma.