Reikningagerð

Við hjá Fastlandi getum séð um reikningagerðina fyrir þig.

Við bjóðum upp á öflug verkfæri og ráðgjöf sem einfalda reikningagerð og bæta yfirsýn. Við aðstoðum þig við að halda utan um tímaskráningar, skilgreina reikningshæfa vinnu og setja upp ferla sem gera þér kleift að fylgjast auðveldlega með stöðu verkefna og innheimtu.

Markmið okkar er að gera reikningagerðina einfaldari, skilvirkari og öruggari svo þú getir einbeitt þér að rekstrinum á meðan við sjáum til þess að allt gangi snurðulaust fyrir sig.

‍

Lesið meira

Útgáfa reikninga og innheimta

Til þess að þú fáir greitt frá þínum viðskiptavinum er grundvallaratriði að senda þeim reikning fyrir þeirri vöru eða þjónustu sem þú hefur veitt þeim. Fyrir þinn rekstur er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir viðskiptavinina, hverjum er búið að senda hvaða reikning, hvaða reikningar eru greiddir og hvort einhverjir útistandandi reikningar séu ógreiddir.

‍
Fyrsta skrefið er samt alltaf reikningagerðin. Þú gerir kannski föst tilboð eða heldur utan um unna tíma fyrir verkefnin og það eru ýmis tæki og tól fáanleg til að auðvelda þér það utanumhald. Hvort sem um er að ræða einstaklinga í eigin rekstri, félagasamtök eða fyrirtæki og stofnanir þá getur þú verið viss um að við getum aðstoðað þig við reikningagerð af því umfangi sem þinn rekstur er.
‍

Hjá Fastlandi erum við með þér í þessu, með samvinnu byggjum við upp þekkingu á þínum rekstri og þannig eigum við auðveldara með vera þér innan handa við reikningagerðina.

Með samvinnu byggjum við upp þekkingu á þínum rekstri.

Í reikningagerðinni aðstoðum við þig meðal
annars með: